Big Baby gáfnaljós
25.5.2010
Ég hef sagt það áður að það er ástæða fyrir því að hann er kallaður "Big Baby"... Um Orlando Magic:
"They don't want to leave. We're going to have to throw them out. It's just like somebody renting a house."
Djúpt
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ótrúlegt hustle play frá Rondo í G3
25.5.2010
Þetta er serían í hnotskurn. Boston vill bara meira en Orlando. Ég er ósammála þeim sem segja þetta skref því um leið og hann nær tökum á boltanum þá stoppar hann eða hættir að renna og stendur upp á einhverju ótrúlegum hraða. Þvílík snerpa og handafimi. Skilur svo J-Will eftir í steypuskóm að reyna að átta sig á því hvað hafi gerst.
Sammála Svala með þetta atriði - í sturtu með J-Will eftir þetta klúður.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Kobe The Facilitator
21.5.2010
Einn NBA spekingurinn sagði við mig um daginn að fátt gæti stöðvað Lakers liðið þegar það spilar eins og það hefur núna gert í úrslitum vestursins. Það er nokkuð til í því en fyrir mér birtist þetta þannig að ef Kobe Bryant heldur áfram að spila eins og hann hefur gert í þessum tveim leikjum sem búnir eru af þessari seríu, er ekkert sem getur stöðvað Lakers liðið.
40 stiga skothríð í fyrri leiknum og nú síðast í gær, hógvært 21 stig en mikilvægar 13 stoðsendingar. Kobe leikstýrði liðinu nánast í gegnum hverja og einastu sókn á meðan hann var inn á vellinum og var iðinn við að finna opna menn þegar tvídekkanir nálguðust. Jú, Lakers voru að hitta eins og rottur (9/16 fyrir utan og 45/78 total) og erfitt að fást við lið almennt í svona ham en skotin sem þeir voru að fá voru nánast alltaf galopin og það vegna þess að Kobe var að finna skytturnar í góðum færum. Gasol blómstraði einnig í þessu óvænta örlæti Kobe Bryant í gær, með 29 stig.
Phoenix Suns hafa ekki spilað góða liðsvörn í þessum leikjum og vissulega má því um kenna árangur Kobe Bryant í þeim. Þeir geta jafnvel ekki varist sjálfir því leikkerfi sem hefur hvað heppnast best fyrir þá sjálfa í þessari úrslitakeppni. Sagt er að best sé að spila physical vörn á Kobe og gefa honum sem minnst pláss en ég hef ekki enn séð leikmann sem gæti komið því í verk í heilar 35-48 mínútur. Þegar á botninn er hvolft held ég að Kobe sjálfur hafi hvað mest áhrif á það hvort varnarmaður hans geti dekkað hann eða ekki.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Orlando Magic þurfa að pappíra sig
20.5.2010
Austurdeildin virðist ætla verða óttaleg froða, að undanskyldu Boston Celtics liðinu það sem af er þessari úrslitakeppni. Eyði nú ekki orðum í Charlotte, Atlanta og Miami, en LeBron James og liðið með besta recordið í deildinni skitu upp á bak gegn Boston í annarri umferðinni (hver sem ástæðan er) og nú eru Orlando Magic, næst besta liðið í deildarkeppninni komið í djúpa 0-2 holu gegn Boston. Celtics tókst á kippa Dwight Howard allsvakalega úr sambandi í leik 1 en í leik 2 mætti annar Superman til leiks en kellingin Carter skeit á sig á línunni og Redick brann yfir í lokin og gleymdi að taka leikhlé eftir gríðarlega mikilvægt frákast.
Margir hafa drullað yfir sóknarleik Dwight Howard eftir fyrsta leikinn gegn Celtics. Hann er enginn Hakeem eða býr ekki yfir jafnmiklum styrk og Shaq gerði á sínum tíma, en það er engum blöðum um það að fletta að drengurinn getur verið helv. öflugur í sókn þegar það er uppi á honum sá bragurinn. Snillingarnir hjá Hardwood Paroxysm ræða muninn á hræinu sem spilaði í búning nr. 12 í fyrsta leiknum og D12 sem mætti til leiks í þeim seinni.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Svakalegasta næstum-troðsla allra tíma
18.5.2010
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 16:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Rasheed Wallace rookie punked
17.5.2010
Chris Webber hefur verið vinnustaðagrínarinn í Washington Bullets á sínum tíma...
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nice...
Shortly after Cleveland was eliminated by Boston in the second round of the Eastern Conference playoffs, LeBron James placed a call to Bulls guard Derrick Rose.
What did they talk about?
Word is, James said he likes Rose's game, likes his team and would welcome the chance to play together.
Ætli hann hafi verið að spyrja hann hvort hann þekkti einhverja thugs þarna í Chi-Town sem gætu bankað í Delonte West fyrir hann?
HookUp: The Daily Herald
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Pick & Roll fyrir lengra komna
17.5.2010
Magnað að sjá hvernig Steve Nash tekst að nýta alla tilfallandi möguleika út frá þessu einfalda kerfi. Nash er ótrúlegur (sóknar)leikmaður. Verður forvitnilegt að sjá hvernig þetta tekst gegn stóru strákunum í Lakers.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
WTF?!! Þetta LeBron James drama verður ótrúlegra með hverjum deginum sem líður... Samkvæmt heimildum komst hann að þessu fyrir fimmta leikinn sem útskýrir spilamennskuna hjá honum í leikjum 5 og 6... en þetta er enn bara slúður og óstaðfest.
What does Lebron James mom have to do with Delonte West? According to various unconfirmed reports, the King James mom and his teammate Delonte West are having an affair. Uhuh, you read right. They are having a relationship behind the Kings back. Given Delonte Wests shady history, this might be true.
HookUp: Daily Top Trends
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Rasheed Wallace er mættur í vinnuna
17.5.2010
'Sheed nennir ekkert að standa í þessari deildarkeppni. Hann kom til Boston til að taka þátt í úrslitakeppninni:
This is why I came here, he said last night after the Celtics series-clinching 94-85 win over Cleveland in Game 6 of the Eastern Conference semifinals. I didnt come here for the regular season.
Þetta er svo mikill nagli. Veður eflaust ekkert í vitinu en hann er með skapið í lagi og hann nennir að berja Dwight Howard sundur og saman. Í fyrsta leiknum gegn Orlando í úrslitum Austurdeildarinnar mætti 'Sheed eins og handrukkari í teiginn í baráttuna gegn D-12 og hafði betur. Howard átti slæman leik í sókninni með aðeins 13 stig, 3/10 og 7 tapaða bolta, á móti 21 stigi og 84% nýtingu í einvíginu gegn Hawks. Þurfum ekkert að fjölyrða hvers vegna þessi stórkostlegi munur er þarna á. Varnarleikur! Enginn hjá Atlanta, geðveikur hjá Boston.
Wallace og Perkins skiptust á að lemja Howard eins og harðfisk en Wallace uppskar t.d. aðeins 4 villur og þar af eina tæknivillu þannig að Superman er ekki að fá mikla ást frá dómurum þessa dagana þó hann hafi farið 12 ferðir á línuna. Eða eru bara öldungarnir í Boston góðir í að pakka saman svona pappakössum sem er búið að hæpa upp í himingeim en standa ekki undir væntingum þegar kemur að úrslitakeppninni.
Howard virðist ekki hafa andlegan styrk til að takast á við svona barsmíðar því hann bognaði algerlega undan álaginu í þessum leik. Að mínu mati þarf maður sem kallar sig Superman að girða sig oní brók og mæta andlega reiðubúinn í annað slugfest á þriðjudaginn í leik 2.
Annars hef ég nýfengna virðingu aftur fyrir Boston Celtics liðinu sem er að spila eins og vel smurð maskína með Rajon Rondo við stýrið. Nema hvað ég þoli ekki Paul Pierce og mun sennilega alltaf gera það.
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 11:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
The Big Aristotle
17.5.2010
Shaq er ekki tilbúinn að leggja skóna á hilluna...
Of course, [O'Neal] said. I missed 360 games because of injury in my career, so by my calculations I still have 3.7 years left. That means Im going to play until Im 41. Ive been here 17 years but Ive missed a lot of games, so I still feel I can play this game.
HookUp: Cleveland Plain Dealer
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Seriously?!
17.5.2010
Later á þetta, Bron... Hvað er þetta lið að spá?! Á þetta að vera fyndið eða alvara?
EMBED-We Are Lebron Video - Watch more free videos
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)