Færsluflokkur: Bloggar

Flugeldasýning a'la Emmcee

Emmcee kveður árið með viðeigandi hætti:  Top 100 (non-NBA) troðslur EVER.  Ég vil þakka ykkur sem hingað koma reglulega fyrir virkilega skemmtilegt körfuboltaár og vonast til að sjá ykkur sem flest hér á komandi ári.  Peace!


Ný könnun

Nú er bara að spá í spilin og segja mér hverjir þið teljið muni hampa NBA meistaratitlinum í næsta mánuði og þá í hve mörgum leikjum.  Könnunin er hér í vinstri dálknum.

- emm


Ný skoðanakönnun

Hvet ykkur til að taka þátt í skoðanakönnuninni hérna til vinstri þar sem ég vil kanna hug manna um stöðu Cleveland Cavaliers í úrlslitakeppninni núna.  Vildi bjóða upp á fleiri svarmöguleika en bara "já" og "nei" til að fá ítarlegri niðurstöður.  Ef þið hafið svar sem ykkur finnst ekki vera í valmöguleikunum skellið því bara hér í athugasemdir.

- emm


Brjálaðir baunar á Nørrebro

copehagen5Shoutouts to my man T-Money sem er ljósmyndari hjá BT í Danmörku.  Hann rétt slapp um daginn frá morðóðum arabaklíkum á Nørrebro eftir að hann reyndi að ná myndum af bardögum sem höfðu geysað þar.  Þeir voru ekki að fíla það, kölluðu hann "lortefotograf" og ætluðu að banka aðeins í hann eða jafnvel eitthvað meira.  T-Money rétt slapp í bílinn sinn með þá á eftir og rétt náði að spæna af stað áður en illa fór.  Crazy-ass shit.  Óþarfi að kalla hann "lortefotograf".


Að skjóta sig í fótinn

Máltakið á kannski ekki hér við í upprunalegri merkingu en þetta myndband gefur því nýja.  Hér er lögreglumaður að sýna krökkum í skóla vopn og hvernig á að fara með þau.  Sumir ættu þó að hlusta á eigin predikanir, en hann er ekki fyrr búinn að sleppa orðunum "I'm the only one in this room professional enough to carry this Glock 40" þegar hann hleypir af skoti í lærið á sér.  Gaurinn er þó það mikill nagli að hann heldur fyrirlestrinum áfram þrátt fyrir þessa "smávægilegu" uppákomu.  Krökkunum er hins vegar hætt að lítast á blikuna þegar rífur upp M16 sjálfvirkan riffil til að sýna þeim.


mbl.is Ráðist á lögreglumann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband