Brandon Jennings setur 55 stig
16.11.2009
Er þessi drengur að fara að verða næsta ofurstjarna deildarinnar? Fór til Ítalíu eftir high school vegna aldurstakmarka NBA deildarinnar og þegar hann fór í draftið höfðu margir efasemdir um hann og hvort hann hefði það sem þyrfti til að spila í þessari deild. Jennings hefur verið ein risastór stigamaskína síðan tímabilið hófst og leiðir Millwaukee liðið með 25,6 stig í leik. Hann er að taka að meðaltali 20 skot í leik en hann setur líka niður helming þeirra. Einnig með 56,7% þriggja stiga nýtingu sem er alveg hreint fáránlegt með yfir 4 tilraunir í leik.
Í þessum leik var hann með "aðeins" 10 stig í hálfleik. 29 stig í þriðja hluta og 16 í þeim fjórða. 45 stig samtals í seinni hálfleik. Crazy.
Jennings hefur greinilega allt sem þarf til að brillera inni á vellinum, nú er bara að vona að hann hafi hausinn í að höndla sig utan vallar.
Nýliðinn skoraði 55 stig | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Íþróttir | Aukaflokkur: NBA | Breytt s.d. kl. 00:37 | Facebook
Athugasemdir
var hann ekki á ítalíu með Loccomatia?
rúnar kárason (IP-tala skráð) 16.11.2009 kl. 00:09
Jú, hvað er ég að bulla?! Rétt, Lottomatica Roma á Ítalíu. Liðið sem Jón Arnór spilaði með á Ítalíu, þaggi? Fannst allt í einu, einhverra hluta vegna, eins og hann hafi verið á Spáni með Rubio. My bad.
Emmcee, 16.11.2009 kl. 00:20
Þessi gæji lookar hrikalega flottur og ef hann heldur rétt á spilunum þá er framtíðin björt, og þá meina ég BJÖRT. Ég horfði á þennan leik í nótt og þessi maður hefur allt! Fljótur, gott skot utan að velli, kemur sér á vítalínuna, gott decision making og bara lovely að fylgjast með þessum gutta, hann minnir mig á ungan Allen Iverson, nema hann er með betri stroku utan að velli heldur AI.
Arnór (IP-tala skráð) 16.11.2009 kl. 00:35
Það sem mér finnst líka magnað er að hann var að skila lakari tölum á Ítalíu en Jón Arnór. Með tæp 6 stig og 2 stoðsendingar á 17 mínútum. Þetta sýnir manni bara hversu gjörólíkur bolti er spilaður þarna.
Trausti Stefánsson (IP-tala skráð) 16.11.2009 kl. 01:06
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.