Seinni hálfleikur strikes again
5.2.2010
Ég er nú farinn að hafa verulegar áhyggjur af mínum mönnum og sæti þeirra í efstu deild og hvað þá möguleikum á að komast í bikarúrslit með þessu áframhaldi. Hnífjafn leikur þar til menn mæta sofandi til leiks í þriðja leikhluta. Ef það er ekki wake-up call fyrir ÍR-inga að tapa fyrir Breiðablik á heimavelli, þá veit ég ekki hvað.
Bikarleikurinn á mánudaginn og mótherjarnir mæta með vindinn í bakið á eigin heimavelli, eftir niðurlægingu á KR sem þeir héldu í aðeins 67 stigum í gær. Nokkuð ljóst að mínir menn verða að hrista út einhver töfrabrögð til að komast í úrslitin... eða jafnvel mæta tilbúnir til leiks og spila 40 mínútur af sínum besta körfubolta.
Góður sigur Breiðabliks gegn ÍR | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Íþróttir | Aukaflokkur: Iceland Express deildin | Facebook
Athugasemdir
Sovic skilar samt alltaf sínu. Þvílíkur leikmaður!!
19 stig 9 fráköst um 65% skotnýting.
Dabbi. (IP-tala skráð) 5.2.2010 kl. 11:06
Ég vil ekki draga úr hæfileikum Sovics í sókn, en framlag hans í vörn er því miður takmarkað. Dekkaði Jeremy Caldwell (og Hreggi reyndar eitthvað líka) sem var með 25 stig, 12 fráköst (6 í sókn) og 77% nýtingu! Stigaskor gildir lítið ef maður fær jafnmörg eða fleiri stig í andlitið á sér í vörninni.
Emmcee, 5.2.2010 kl. 11:43
Samt það verður nú að taka í reikningin að þeir eru að spila um 30mín í leik. Þeir þurfa einhverstaðar að hvíla sig, annað er nú ekki hægt.
Dabbi (IP-tala skráð) 5.2.2010 kl. 15:55
Dabbi þú ert að grínast?
Spila 30min og þeir þurfa einhverstaðar að hvíla sig!
Þetta er ekki fótbolti! Ef menn geta ekki spila bæði vörn & sókn, þá eiga menn bara að vera heima!
Áfram IR!
ps. Hvað er Óli Jordan að fara aftur í stjörnuna??
Kobe 8 (IP-tala skráð) 7.2.2010 kl. 13:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.