Milwaukee Bucks sækja nýja leikmenn

The Warriors and Bucks have completed a trade that will send Golden State small forward Corey Maggette to Milwaukee for guard Charlie Bell and center Dan Gadzuric.

The Bucks also picked up a second-round pick in Thursday's draft (44th overall, the pick Golden State got from Portland in a swap Monday). Milwaukee now has three selections in the round: Nos. 33, 44 and 47.

Yahoo! Sports reported late Tuesday that Milwaukee is close to acquiring wing player Chris Douglas-Roberts from the Nets for an undisclosed draft pick.

HookUp:  The Baseline


Ron Ron hress


Los Angeles Lakers @ Jimmy Kimmel


Leikur 7 í nótt!

nba%20trophyAðeins tvisvar á síðustu 20 árum hefur úrslitasería í NBA deildinni farið í 7 leiki með hreinum úrslitaleik í lokin.  Síðast 2005 þegar San Antonio Spurs mættu Detroit Pistons með sigri Spurs, þar áður þegar New York Knicks mættu Houston Rockets í legendary seríu sem endaði með því að Rockets hömpuðu titlinum.

Ég verð hins vegar að segja að þessi sería hefur komið skemmtilega á óvart og flestir ef ekki allir leikirnir mjög góð skemmtun.  Ekki aldeilis þau sömu vonbrigði og þegar þessi lið mættust síðast í úrslitum árið 2008.  Kobe á harm að hefna síðan þá og mun því ekkert duga nema sigur fyrir hann.

Mér er hins vegar nok sama hver hampar titlinum í lok leiks í nótt svo lengi sem leikurinn verður spennandi allt fram á síðustu sekúndu.


Fáránlega góð framkvæmd hjá Kobe Bryant

Djöfull gerir hann þetta vel...


This needs to stop

...komið út fyrir öll eðlileg skynsemismörk.


"From the zone to the twilight zone"

Sekou Smith hjá NBA.com hefði ekki getað orðað þetta betur.  Á aðeins 48 tíma millibili fór Ray Allen frá því að vera skíðlogandi í að vera helfrosinn.  8/11 í þristum í leik 2, þar af 7/7 í fyrri hálfleik... 0/13 í leik 3.  Við erum að tala um Michael Jordan í Finals G1 á móti Portland Trail Blazers 1992 (6/11 í þristum, allt oní í fyrri hálfleik) vs. John Starks í Finals G7 gegn Houston Rockets 1994 (0/11 í þristum).  Sæll!

Heiðurinn af þessu fer á Lakers vörnina að mínu mati, sem heldur betur lokuðu á Ray Ray eftir að hann niðurlægði þá á eigin heimavelli í öðrum leiknum.  Einnig finnst mér Allen vera í mjög litlu jafnvægi í þessum skotum sem hann var að taka.  Hann var bara ekki á svæðinu.


Rajon Rondo er með þetta


Boston menn eru öruggir með sig

og finnst þeir vera búnir að vinna þetta.  Klárlega komnir í þægilega stöðu en ættu að hafa í huga að þetta er best-of-7 sería og nóg eftir.


Ray Allen getur skotið boltanum

... það er á tæru.


Ron Artest er Go-To-Guy í LA


Eminem - Not Afraid (Video)


The Rivalry Continues


NBA úrslitin hefjast í nótt kl. 1:00

Þá er komið að því.  Kobe fær annað tækifæri til að sýna Boston Celtics í tvo heimana.  Þessi lið mættust síðast í úrslitum 2008 og eing og flestir vita unnu Celtics sinn 17 titil þá.  Lakers liðið er töluvert betra núna en fyrir tveim árum og rúllaði sem smurð vél á móti Phoenix, í það minnsta í tveim síðustu leikjunum.  Kobe var ómannlegur í lokin gegn Suns og setti niður fáránleg skot úr fáránlegum færum til að sýna öllum heiminum að nú verður payback time.

Celtics menn eru háaldraðir með "Stóru 3" sem að mínu mati ættu að kallast "Rajon Rondo og Stóru 3".  Rondo er búinn að vera í ruglinu góður það sem af er úrslitakeppninni þó hann hafi eitthvað látið á sjá í lok seríunnar gegn Magic.  Einhver meiðsli spila þar víst inn í.  Hef hins vegar trú á að Lakers bakverðirnir verði í bullandi vandræðum með hann ef hann er á sínum eðlilega hraða. 

Að mínu mati er þessi sería galopin þó ég ætli að spá Lakers í sex leikjum.  Lakers eru með betra og sjóaðra lið en 2008, auk þess sem það er ekki mikið breytt og menn því getað pússað sig vel saman.  Celtics kjarninn er beisiklý sá sami þó vanti Leon Powe og James Posey sem voru mjög drjúgir í úrslitunum 2008.  Rasheed Wallace er kominn yfir til Boston til að berja á Gasol og Bynum og Ron Artest kominn til Lakers til að pakka saman frú Paul Pierce.

Leikir þessara liða enduðu báðir með litlum mun og mikilli dramatík svo það er eftir mikilli skemmtun að vænta býst ég við.


LeBron James verður hjá Larry King á föstudaginn


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband