CNN - Hood Love ft. Faith Evans (Video)


The G.O.A.T.

Þarf að ræða þetta eitthvað frekar?

GOAT-graphic-full

HookUp:  Juiced Sports Blog


Donald Sterling er ekki alveg með þetta

A couple of months ago this was going to be the summer of all summers for the Clippers, a fresh start, a chance to hire a new coach, $17 million in cap space to go after LeBron or other big names like him and make a huge splash.

And so they signed Randy Foye and Ryan Gomes.

Or, as Sterling put it, "If I really called the shots we wouldn't have signed Gomes and what's the other guy's name?

"You know, they told me if we built a new practice facility we'd attract all the top players in the game," Sterling adds. "I guess I should have doubled the size of this place."

He's no different than most Clippers fans.

"I swear to you, I never heard of these guys," Sterling says, "but what if the coach says he wants them?"

Og svo velta menn því fyrir sér hvers vegna Los Angeles Clippers gangi alltaf svona illa.  Kannski vegna þess að eigandi liðsins hefur ekki hugmynd um hvað allt þetta snýst.  Ég hélt að það væri nóg fyrir liðið að losa sig við Mike Dunleavy en svo virðist sem rót vandans nái dýpra.

HookUp:  True Hoop / LA Times


Chris Bosh kemur fram í Entourage

Chris Bosh má ekki vera lakari maður en vinur hans LeBron James, svo hann kom sér inn í síðasta þátt Entourage sem sýndur var úti á sunnudaginn.  Þetta hefur verið tekið snemma í sumar því Bosh er enn með flétturnar þarna, en skrifað með það að leiðarljósi að þátturinn yrði sýndur eftir að free agency lætin væru búin.  Turtle tekur hressandi skot á Bosh:  "Trust me, an Avion margarita will change your life... like playing for the Knicks would have."


STAT var monster í highschool

Þetta er bara ridiculous... WTF með tónlistina annars?!


Barkley til LeBron: "Put Me On Your List, Punk!"

 jamesbarkley

Charles Barkley er ekki sáttur við twitter kommentið hans LeBron um daginn þar sem hann sagðist vera að punkta hjá sér hver væri að dissa hann.

“I heard about LeBron’s tweet…well I want him to make sure he puts my name on there. His little one hour special was PUNK move. Them dancin’ around on stage was a punk move. If he takes that as criticism, so be it. He knows where I am, I don’t run. I’m on tv every week.”

“He’s got enough people kissing his ass with his family and all the people who work for him,” Barkley said. “We don’t have to tell him what he wants to hear all the time … That one-hour special, them jumping around on stage like punks, that wasn’t cool to me. From a basketball standpoint, I wish he had stayed in Cleveland, and if he takes that as criticism, so be it.”

Spurning að Barkley slaki aðeins á sósunni.  Komandi tímabil í NBA verður alltaf meira og meira spennandi.

HookUp:  CBS Sports


To the 5 Boroughs... NYC

checkthist


Birdman splæsir í einn Bugatti Veyron

Illa farið með fallegan bíl.  Hann er alltaf svo skakkur að ég spái því að þessi bíll endi svona.


50 Cent púllar Mel Gibson á Shyne

Ég á bágt með annað en að hlæja að þessu...


Chris Paul fer hvergi... ennþá

New-Orleans-HornetsGengið var frá fjögurra liða, fimm leikmanna skiptum í gær þar sem New Orleans Hornets, Houston Rockets, Indiana Pacers og New Jersey Nets skiptust á leikmönnum.  Trevor Ariza fer til Hornets, Troy Murphy fer til Nets, Courtney Lee fer til Houston og Darren Collison og James Posey fara frá New Orleans til Indiana.

Indiana Pacers fara heim með vinninginn eftir þessi viðskipti.  Láta frá sér Troy Murphy sem er jú solid 15-10 leikmaður þegar hann getur spilað en hann hefur ekki spilað heilt tímabil frá því hann var nýliði.  Fá í staðinn gamlan ref í James Posey sem getur heldur betur dottið sterkur inn þegar hann tekur sig til og einn efnilegasta PG deildarinnar í Darren Collison.  Sá gutti hefur verið undir góðri handleiðslu Chris Paul síðastliðið tímabil og fyllti heldur betur og í skarðið sem Paul skyldi eftir sig á meðan hann var í meiðslum góðan hluta tímabilsins. 

Hornets finnst mér hins vegar vera að tefla á tæpasta vað með þessum hreyfingum.  Fá jú fínasta leikmann í Trevor Ariza sem er 15 stiga maður sem spilar einnig góða vörn, en láta hins vegar frá sér Collison.  Ákveði svo Chris Paul að pakka í tösku og beila sumarið 2012 verða þeir í tómum vandræðum.  Hornets sendu einnig frá sér Julian Wright til Toronto fyrir Marco Belinelli í gær.

Nets taka sjensinn á Troy Murphy og Rockets fá Bónus-útgáfuna af Trevor Ariza í Courtney Lee.


Durantula is a beast!

Kevin Durant skólar nokkra gaura í götubolta.  Gaman að sjá leikmann sem getur skorað nánast að vild í NBA deildinni nenna og hafa gaman af því að spila pick-up bolta á sumrin.  Kannski þess vegna sem honum fer fram á hverju ári.  Þessi gutti er óhræddur við að hafa fyrir hlutunum og er að uppskera eftir því.


MJ - Love of the Game

Kudos til MJ fyrir að raka af sér þetta gaddemm yfirvaraskegg... Mottumars er löngu búinn.


The Jolly Green Shaq fer til Boston Celtics

Green_Giant
A.k.a. Shaquille O'Neal.  Mikið skrifað um að ferill Shaq sé búinn og að þetta sé tilgangslaust hjá Celtics.  Ég er hins vegar á öðru máli.  Má vera að Shaq sé ekki í sínu besta formi og endasprettinum á ferli sínum.  Maðurinn er hins vegar ótvíræður sigurvegari með mikla reynslu.  Fjórir hringir eru meira en allir í þessu Celtics liði hafa yfir að búa.

Tom Haberstroh, hjá ESPN tvittaði nýverið:

LeBron with Shaq last year: Cavs +3.4 pts per possession. LeBron without Shaq? +15.7. That experiment was fun wasn't it?

Jú, Shaq átti erfitt uppdráttar í sókninni hjá Cavs og þvældist oft fyrir, en nærvera hans í vörninni gerði mikið gagn.  Cavs og Suns (tvö síðust liðin sem Shaq spilaði með) spiluðu hraðan leik á meðan Celtics eru varnarmiðað lið sem einblínir á að hægja á leiknum og spila úr kerfum.  Því myndi ég telja Shaq vera kominn á góðan stað.

Fjarvera Kendrick Perkins fram í janúar eða febrúar á næsta ári mun eflaust skila slatta af mínútum til Shaq en ég er nokkuð viss um að Jermaine O'Neal verði frekar látinn sitja á bekknum í upphafi tímabils.

Ekki má heldur gleyma því að Doc Rivers er að mínu mati mun betri þjálfari en Brown og D'Antoni (með fullri virðingu fyrir þeim tveim) og tel ég það verði Shaq til happs.

Ég er alla vega spenntur fyrir þessari tilraun hans Danny Ainge og þar að auki gerir hún fyrsta leik liðsins í haust gegn engum öðrum en The Three Kings aka The New World Order aka Miami Heat, töluvert meira spennandi.


Chris Kaman er svo eðlilegur

Redneck...


P.O.P. - 2 Hard Living ft. DeJuan Blair (Video)

DeJuan Blair nýliði San Antonio Spurs í fyrra, "syngur" hér inn á lag með P.O.P... auto-tunaður í drasl og nokkuð hress á því.  Eflaust bara með Cool-Aid í glasinu samt... mmmhmmm.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband