Bloggfærslur mánaðarins, mars 2009
Stefnir í að þessi Keri Hilson plata verði bara nokkuð traust.
Knock You Down - Keri Hilson ft. Kanye West & Ne-Yo
Tónlist | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Aldrei stríð á Íslandi / Gran Torino
5.3.2009
Fór í bíó í gær og sá stuttmyndina Aldrei stríð á Íslandi sem sýnd var á undan Clint Eastwood myndinni Gran Torino. Góður vinur minn, kvikmyndasnillingurinn Bragi Þór Hinriksson gerði stuttmyndina og var hún alveg brilljant. Gífurlega smekklega unnin á allan hátt tæknilega, hljóðsetning og effectavinnsla alveg til fyrirmyndar. Bragi er mjög visual leikstjóri og er kvikmyndatakan alveg eftir því. Haffi sem leikur hermanninn sýnir fínan leik og kemur manni á óvart að hann hafi ekki lært leiklist. Virkilega öflug stuttmynd.
Kíkið á innslag um myndina og viðtal við Braga í Kastljósi.
Svo var það Gran Torino. Þvílíkt snilld þar á ferð. Það verður bara ekkert svalara en Clint Eastwood. Kallinn að detta í áttrætt og mann langar ekkert til að vera að messa í honum. Fleygar línur eins og "Ever notice how you come across somebody once in a while you shouldn't have fucked with? That's me." Bara alveg eins og það á að vera. Frábær mynd þarna á ferð.
Myndirnar eru sýndar í Sambíóunum.
Kvikmyndir | Breytt s.d. kl. 12:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Deron Williams - þvílíkur leikmaður
5.3.2009
D-Will hjá Utah Jazz er verulega vanmetinn leikmaður og fer ekki mikið fyrir honum. Kannski vegna þess að hann er í einu leiðinlegasta liði allra tíma í NBA deildinni, hver veit. En hann hefur ótrúlega mikla boltatækni og getur sent boltann í gegnum nálarauga. Það sem einna helst gerir hann að einum besta leikmanni deildarinnar í dag er hversu góður hann er að skapa sér færi og koma varnarmönnum úr jafnvægi. Við höfum séð hann hérna á síðunni setja Marco Belinelli á skauta og setja Jason Terry á rassgatið með einu crossover. Nú síðast er það Yao Ming sem stendur eins og trúður eftir hesitation-fake frá D-Will. Nice.
Fín highlights úr þessum leik annars. D-Will með fleiri flott múv og sendingar og AK-47 með eina no-look sendingu "from Russia with love".
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Shaq er dáldið steiktur
5.3.2009
Það er ekkert leyndarmál að Shaq er ekki hrifinn af Dwayne Wade, líkt og hann og Kobe Bryant elduðu lengi grátt silfur saman. Shaq og Kobe eru orðnir best buds ef marka má það sem kom fram um All-Star helgina, en Shaq ber augljóslega enn einhvern kala til Wade. Það ber ekki á öðru þegar maður sér hann standa yfir Wade eftir sjöttu villuna og greinilega segja eitthvað við hann, í stað þess að hífa hann upp. Dáldið steikt að mínu mati.
Anyway, fínn leikur þrátt fyrir það. Wade í bullinu með 35 stig og 16 stoðsendingar. Eitt svaðalegt blokk á gamla manninn, Grant Hill. Beasley 11/17 með 28 stig og byssan úr þriggja stiga skotkeppninni D-Cook með 27 stig, 6/8 í þristum. Suns spiluðu aðeins á 8 mönnum. Nash með góða endurkomu eftir meiðslin, 29 stig og 10 stoðir.
![]() |
O'Neal tapaði í heimsókn á gamla heimavöllinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Product of the D-League
5.3.2009
Þessi gaur kom frá NBDL deildinni sem er nokkurs konar ruslakista NBA deildarinnar. Þaðan tína NBA liðin upp gaura sem eru að standa sig. Þar á meðal Mike Taylor sem var hent út úr Iowa State skólanum eftir síendurtekna árekstra við lögin og komst svo að hjá Idaho Stampede í NBDL.
Nema hvað hann sýnir hér fullorðins troðslu.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Troðsla.... uuuh, ársins?!
4.3.2009
Damn, ég er alla vega orðlaus. Killer first step hjá honum þarna.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Kid CuDi - Sky Might Fall
4.3.2009
Tónlist | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Old vs. New
4.3.2009
Shaq og Dwight Howard mættust í nótt. Shaq með 19 stig, 11 fráköst og 2 blokk, þar af eitt í andlitið á Howard sjálfum. Superman var með 21 stig, 8 fráköst og 1 blokk. Byssurnar hjá Magic gengur hins vegar alveg frá leiknum, Turkoglu og Lewis, saman með 51 stig og með 2/5 í þristum hvor.
![]() |
Lakers á sigurbraut á ný |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Jákvætt fyrir mína menn
4.3.2009
Var einmitt að ræða það við mætan mann áðan hvað þetta væri jákvætt fyrir ÍR-ingana. Blikar héldu Stjörnumönnum fyrir neðan þá með þessum sigri. Eftir góðan sigur á FSu og þetta tap Stjörnunnar komust við upp í 6. sætið.
Nú er bara fyrir mína menn að éta nokkrar rúsínur og orkusjeika fyrir þessa tvo leiki sem eftir eru, því allt verður að vinnast til að halda þessu. Engir leikir eru gefnir fyrir ÍR eins og staðan er í dag og þarf að mæta í leiki með það hugafar að um hreinan úrslitaleik sé að ræða. Á morgun er það Þór í Höllinni á Akureyri og svo Grindavík heima 8. mars. Koma svo strákar!
![]() |
Blikar náðu að leggja Stjörnuna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Alltaf fyndin svona "þú verður laminn ef þú kemur í bæinn minn" lög.
Tónlist | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)