Bloggfærslur mánaðarins, mars 2009
Retro Emmcee - Old School Dance
10.3.2009
Emmcee hefur verið gagnrýndur fyrir einfeldni í tónlistarvali hér á blogginu og er því vert að henda inn lagi sem kallinn fílaði mjög vel back in the day. Veit ekki hvernig flokkun þetta lag fær í dansflórunni, en ég held að þetta sé kallað down-tempo house eða eitthvað því um líkt. Það heitir Temple Head og er með grúbbu sem kallaði sig Transglobal Underground. Þau hafa einnig verið flokkuð sem ethno-techno.
Lagið heyrði ég fyrst hjá Omma Friðleifs þegar hann var með þáttinn Hvíta tjaldið á einhverri útvarpsstöðinni (man ekki hverri). Ommi var á þessum tíma duglegur að flytja ferska strauma til landsins og þá erum við að tala um vínilplötur, enda löngu fyrir tíma veraldarvefsins og niðurhals. Það var vitað mál að strákurinn hafði alltaf eitthvað rjúkandi heitt fyrir hvern þátt. Hann frumflutti þetta lag, ef ég man rétt, á haustmánuðum 1991 og greip ég það strax. Minnir að ég hafi jafnvel tekið það upp á kassettu. Now that's OLD SCHOOL! En lagið er frábært og eldist mjög vel þrátt fyrir 18 ára aldur. Mæli með að hlusta í HQ.
Tónlist | Breytt s.d. kl. 22:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Má vera að hann sé annar besti leikstjórnandi deildarinnar, en DAMN! Hvað er að frétta með hárið, Dee?? Þetta er eins og gömul kona með skegg. Hann þarf að fá sér fade og offa skeggið. Word?!
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Þið hljótið að vera að grínast?!
10.3.2009
Þetta Lakers fetish hjá Mbl.is mönnum er að verða frekar þreytt. Pistill um Lakers að drulla upp á bak í Portland og tapa með 17 stigum. Á austurströndinni hins vegar var alvöruleikur. Bulls vs. Heat sem var tvíframlengdur og endaði með bözzer þrist frá D-Wade sem kláraði leikinn. Wade með 48 stig (20/27 nýting, 5/6 í þristum) og 12 stoðir. Ben Gordon með 43 og 22/34 nýtingu, þar af 8/11 í þristum. Bulls spiluðu bara 7 leikmönnum og Derrick Rose spilaði 55 mínútur af þeim 58 sem í leikurinn spannaði. Rugl.
![]() |
Lakers tapaði í Portland |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Hver í fjandanum er Jason Maxiell?
10.3.2009
Það er gaurinn sem var að dönka hægri vinstri yfir Orlando í nótt.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þetta er tileinkað Omma og Dodda. Af því þeir elska svona tónlist with a passion. Njótið vel.
Tónlist | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Notorious fer ekki í bíó
9.3.2009
Samkvæmt heimildum frá Omma, sem er vel innvíraður í kvikmyndaheiminn hérna á Íslandi, mun Sena ekki sýna Notorious, kvikmyndina um Notorious B.I.G., í kvikmyndahúsum. Þess í stað fer hún beint á DVD 30. júní nk. Þetta eru mér mikil vonbrigði, sér í lagi þar sem þeir eru óhræddir við að henda þessum viðbjóði á tjaldið hjá sér. Hvað ætli sé búið að gera þessa mynd oft og hversu oft ætli Owen Wilson sé búinn að leika í henni?!!
Anyway, þá er bara að drífa sig á leiguna 30. júní og tékka á Notorious. Písát.
Sá þennan gaur fyrst í Cypher#1 á BET Hip-Hop Awards á síðasta ári og stíllinn hans greip mig strax. Frá Mogadishu í Sómalíu sem litar mikið umfjöllunarefni laga hans. Platan hans Troubadour sem kom út í lok febrúar er fínasti gripur. Fríður hópur gestaperformera eins og Chubb Rock, Damien Marley, Adam Levine, Mos Def og jafnvel Kirk Hammett úr Metallica slær á strengi fyrir hann í einu lagi.
Tónlist | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
ÍR - Grindjánar í playoffs
9.3.2009
ÍR kláraði deildina í 7. sæti og mæta því Grindavík í fyrstu umferð úrslitakeppninnar. ÍR-ingar hafa tapað öllum þrem viðureignum sínum við Grindavík í vetur (sé bikarkeppnin tekin með) og verður því á brattan að sækja fyrir mína menn. Leikurinn í gær var samt að mörgu leyti jákvæður þrátt fyrir óhagstæð úrslit. Sóknin gekk þokkalega og menn voru að hitta mjög vel, að undanskilinni vítanýtingu liðsins.
Lykillinn að sigri gegn Grindavík er eins og flestir átta sig á, að stoppa þriggja stiga skyttur liðsins. Tæplega 31% þeirra skota sem liðið tekur eru neðan úr bæ. Grindvíkingar skora að meðaltali 33 stig með þristum. Að skera þetta niður um þó ekki væri nema helming ætti að koma liðinu úr jafnvægi og þvinga það út fyrir sitt comfort zone. Það er þó hægara sagt en gert þar sem fjöldi leikmanna sem geta sett langskotin er töluverður og erfitt að loka á einhvern einn þegar annar stígur upp og tekur við.
Mér finnst samt eins og Grindavík sé ekki að spila á fullu gasi þessa dagana. Páll Axel ekki með í gær og liðið að spila á 7 mönnum. Er það öll dýptin á bekknum? ÍR-ingar eiga að nýta sér þetta á fullu. Ekki er búist við neinu af þeim og þeir "undirhundar" í þessari viðureign.
Koma svo ÍR-ingar! Þeir sendu okkur heim úr bikarnum, nú hendum við þeim út úr úrslitakeppninni.
![]() |
Breiðablik í úrslitakeppnina - Þór féll |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Gary Payton og Chris Webber fara á kostum í Rewind The Remix á NBA TV.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)