Hef sífellt minni trú á Cleveland

Cleveland Cavaliers vs. Orlando Magic 89-99 (1-2) 

Það voru allir möguleikar fyrir Cleveland til að vinna þennan leik.  Howard í bullandi villuvandræðum mest allan leikinn og spilaði samtals 27 mínútur.  Turkuglu ekki að hitta rassgat (1/11) en Cavs voru iðnir við að senda hann á línuna þar sem hann sótti 11 stig.  Einnig fór lítið fyrir Rashard Lewis en samt áttu Cavs í rjúkandi vandræðum með þá.  Orlando voru að skjóta um 43% og 35% frá þriggja stiga sem er töluvert slakara en í fyrstu tveimur leikjunum.  Dómgæslan skelfileg en hallaði þó að mörgu leyti á hvorugt liðið fyrr en í lokin þegar dæmd var villa á Howard þar sem hann blokkaði LeBron James (eða LuBrán eins og Svali kallaði hann í alla nótt) í þriggja stiga skoti.  Skelfilegur dómur á mikilvægu augnabliki.

Það hafði hins vegar lítið að segja.  Cleveland liðið spilaði eins og miðaldra karlar í helgarkörfubolta.  Vörnin þó skítsæmileg en sóknin algerlega tilviljanakennd.  Engin liðsheild í sókninni og þessar örfáu körfur sem James skoraði ekki komu eftir þvingað einstaklingsframtak.  Ein sending og skot eða drippl í hringi og hnoð í teignum.  West og Williams áttu þó smá rispu í fjórða hluta þar sem þeir settu niður nokkur langskot.  Restin af liðinu var bara með hausinn á kafi í afturendanum. 

"Hinir" leikmennirnir hjá Orlando voru hins vegar solid.  Rafer Alston með góðan leik og Pietrus með frábæra innkomu af bekknum í bæði vörn og sókn. 

Cleveland eru í tómu rugli núna og stórefast ég nú um að þeir hafi það í sér að dröslast í gegnum þessa seríu.  Þessi leikur var eiginlega make-or-break fyrir þá því menn hljóta að fara að þreytast andlega þó líkamlegt álag hafi ekki verið mikið hjá þeim í þessari keppni.  Orlando eru að spila solid bolta og ef stjörnurnar eru í vandræðum þá eru allir tilbúnir að taka þátt og pikka upp slakann.  Það sárvantar hjá andstæðingum þeirra.

Ég hef hins vegar sagt hér að ég hafi trú á því þessi sería verði söguleg og því held ég að eitthvað magnað eigi eftir að gerast.  Við bíðum og sjáum.


mbl.is Orlando gefur ekkert eftir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hafði nú ekkert séð til Orlando fyrr en í þessari seríu á mót Cleveland og verð að segja að þetta einstaklega skemmtilegt og vel spilandi lið, keyra á háu tempoi og með hrikalega öflugar skyttur í öllum stöðum. Vonandi að þeir fari alla leið og vinni titilinn enda vel að því komnir

Jói Óla (IP-tala skráð) 25.5.2009 kl. 12:39

2 Smámynd: Emmcee

Eins og leikirnir hafa farið núna þá verð ég bara að vera sammála þér.  Haldi þeir áfram að spila svona ættu þeir að vera nokkuð öruggir áfram.

Emmcee, 25.5.2009 kl. 12:49

3 identicon

Úff, ég er ekki að sjá Cavs komast framhjá Magic og James vinna sinn fyrsta hring. Vona bara að Howard nái því . 

Ekki alveg búið samt...Ef ég vakna á miðvikudaginn og sé að það er 3-1 mun ég játa það að þetta er búið, nema Mike Brown taki einhvern svaðalegan sálfræðipakka á Cavs eins og Benni Guðmunds gerði eftir leik 3 í úrslitunum.

Cavs eru samt í góðum málum, detti þeir út núna þurfa þeir bara að re-signa Varejao og James og fá góðan "big man". Helst Bosh.

Grétar (IP-tala skráð) 25.5.2009 kl. 13:11

4 identicon

Vei! Loksins einhver sem tók eftir "LöBrán". Vá hvað það pirrar mig! Sama á við um "Túrkúglú", en nafnið er borið fram "Törkolú" og svo... "Rafar" og stundum "Rafa". Sagði ekki annar þeirra "Vardsjá"? 

Hélt að þessir menn fylgdust meira með boltanum en þetta, eiga að vita hvernig nöfn eru borin fram, sérstaklega LöBRÁN!

Arnar (IP-tala skráð) 25.5.2009 kl. 13:14

5 identicon

LuBrán & co eru í vondum málum!

Kobe 8 (IP-tala skráð) 25.5.2009 kl. 13:15

6 identicon

Dómgæslan í úrslitakeppninni er búin að vera skelfileg en leikurinn í gær toppaði alla vitleysuna.

Við erum að tala um: 98 FGA      43 3FGA     86 FTA

Næstum jafnmörg víti og field goals í leiknum en samt náðu liðin 43 þriggja stiga skotum. 

President (IP-tala skráð) 25.5.2009 kl. 13:52

7 identicon

Leikurinn í gær var gott dæmi um dómara sem eyðileggja flæði leiks. Það komst aldrei neinn rythmi í leikmenn útaf sífelldum flautum og FÁRÁNLEGUM dómum.

Versta var þó þegar Dwight blokkaði LeBron þegar hálf mínúta var eftir. Þetta var SVO clean blokk enda var Dwight ekki sá kátasti eftir þetta. 

Arnar (IP-tala skráð) 25.5.2009 kl. 13:59

8 Smámynd: Emmcee

86 vítaskot segja allt sem segja þarf um dómgæsluna.

Emmcee, 25.5.2009 kl. 17:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband