Þegar Udonis Haslem var hent út úr leiknum gegn Atlanta í gær reif hann sig úr treyjunni og fleygði henni til áhorfenda. Myndavélin elti hann og þá náðist þessi rammi hér að neðan. Eins og þið sjáið þá hefur hann látið tattúa á sig landakort af Flórída svo hann geti alltaf ratað heim aftur. Ég veit hins vegar ekki hvern hann hefur fengið til að djæfa alltaf með sér og lesa á kortið.
Athugasemdir
NBA er svoleiðis að skíta upp á bak með þessa dómgæslu í úrslitakeppninni.
Sem dæmi þá er ekki lítið sem er verið að redda Boston/Rondo þessa dagana á sama tíma og Haslem fær glórulausa brottvísun.
En það er ekki eina þar sem það virðist skipta öllu máli hvort þú sért á heimavelli eða ekki. Það er eins og það sé yfirlýst stefna NBA að heimaliðið vinni leikina sína svo léleg er dómgæslan búin að vera.
Og ef að þetta er Flagrant 2 þá munum við hætta að sjá fullskipuð lið í leikjum deildarinnar.
Sorglegt.
President (IP-tala skráð) 4.5.2009 kl. 22:46
Sé að Prez er að undir búa sig ef að illa fer fyrir hans mönnum en Prez lakers vinnur þetta þrátt fyrir Lebba Jóanassar
Ómar Ingi, 5.5.2009 kl. 02:11
Omm, Knicks?
Þórður Helgi Þórðarson, 5.5.2009 kl. 08:01
Ef Kobe tjókar ekki í úrslitunum þá eiga þeir sjens í titilinn.
Emmcee, 5.5.2009 kl. 09:52
Hvernig fer dýrið að því að lesa á kortið. Ljóst að hann verður að hafa einhvern með sér til að týnast ekki.
eazy (IP-tala skráð) 5.5.2009 kl. 10:13
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.