Vince Carter sallaði niður 48 kvikindum á New Orleans Hornets um daginn í 19/27 nýtingu. Ekki slæmt fyrir gamla manninn en ég veit ekki hvort þetta beri sterkari vitnisburð um hæfileika Vince Carter eða stöðuna á varnarleik New Orleans þessa dagana. Það er hins vegar ófyrirgefanlegt fyrir Orlando Magic að leyfa Hornets (og það án Chris Paul) að skora 70 stig í fyrri hálfleik. Hornets hefðu hæglega getað landað þessum sigri hefðu þeir barið aðeins á Carter í seinni hálfleik, því hann leiddi þetta comeback hjá Orlando. Carter þrífst á svona bómullarvörn og ekki óeðlilegt að hann skori um 50 stig þegar enginn nennir að dekka hann. Tékkið á 4:29 fyrir gott dæmi.
![]() |
Carter og Gasol í stórum hlutverkum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.