Færsluflokkur: Íþróttir

Boston menn eru öruggir með sig

og finnst þeir vera búnir að vinna þetta.  Klárlega komnir í þægilega stöðu en ættu að hafa í huga að þetta er best-of-7 sería og nóg eftir.


Ray Allen getur skotið boltanum

... það er á tæru.


Ron Artest er Go-To-Guy í LA


The Rivalry Continues


NBA úrslitin hefjast í nótt kl. 1:00

Þá er komið að því.  Kobe fær annað tækifæri til að sýna Boston Celtics í tvo heimana.  Þessi lið mættust síðast í úrslitum 2008 og eing og flestir vita unnu Celtics sinn 17 titil þá.  Lakers liðið er töluvert betra núna en fyrir tveim árum og rúllaði sem smurð vél á móti Phoenix, í það minnsta í tveim síðustu leikjunum.  Kobe var ómannlegur í lokin gegn Suns og setti niður fáránleg skot úr fáránlegum færum til að sýna öllum heiminum að nú verður payback time.

Celtics menn eru háaldraðir með "Stóru 3" sem að mínu mati ættu að kallast "Rajon Rondo og Stóru 3".  Rondo er búinn að vera í ruglinu góður það sem af er úrslitakeppninni þó hann hafi eitthvað látið á sjá í lok seríunnar gegn Magic.  Einhver meiðsli spila þar víst inn í.  Hef hins vegar trú á að Lakers bakverðirnir verði í bullandi vandræðum með hann ef hann er á sínum eðlilega hraða. 

Að mínu mati er þessi sería galopin þó ég ætli að spá Lakers í sex leikjum.  Lakers eru með betra og sjóaðra lið en 2008, auk þess sem það er ekki mikið breytt og menn því getað pússað sig vel saman.  Celtics kjarninn er beisiklý sá sami þó vanti Leon Powe og James Posey sem voru mjög drjúgir í úrslitunum 2008.  Rasheed Wallace er kominn yfir til Boston til að berja á Gasol og Bynum og Ron Artest kominn til Lakers til að pakka saman frú Paul Pierce.

Leikir þessara liða enduðu báðir með litlum mun og mikilli dramatík svo það er eftir mikilli skemmtun að vænta býst ég við.


LeBron James verður hjá Larry King á föstudaginn


Kobe Bryant illviðráðanlegur í þessum ham

Þrátt fyrir vonbrigði mín að fá ekki að sjá sjöunda leikinn þá verð ég að taka ofan fyrir meisturunum sem spiluðu sem slíkir í þessum leik.  Phoenix áttu í erfiðleikum í frákastabaráttunni en mikið stigaskor Lakers í fyrri hálfleik myndi ég ekki skrifa á slæma vörn heldur mikinn hita í skotum Los Angeles manna. 

Kobe var algerlega í ruglinu í lokin og alveg sama hver var á honum, eða öllu heldur hverjir, því hann skaut yfir hverja tvídekkunina á fætur annarri og sökkti.  Grant Hill og félagar spiluðu fáránlega góða vörn á hann en þegar kvikindið er í þessum ham er einfaldlega ekki hægt að loka á hann.  Ron Artest átti góðan sprett í fyrri hálfleik í sókninni og hefur verið drjúgur fyrir Lakers liðið í seríunni.

Nash og STAT spiluðu fínan leik, samanlagt með 48 stig.  Goran Dragic hins vegar átti magnaðar mínútur í fjórða hluta eftir að Sasha Vujacic reitti hann til reiði með höggi á hökuna.  Dragic gersamlega skeindi sér á Vélinni og skildi hann ítrekað eftir að smjatta á rykinu á meðan hann lagði boltann í hringinn.  Jax var fljótur að kippa Sasha aftur á bekkinn en það var orðið of seint.  Dragic kominn í gírinn og leiddi sókn Suns aftur að jöfnum leik.  Craig Sager spurði Kobe hvað hann ætlaði að segja við Sasha eftir leikinn og svarið var stutt:  "I'm gonna kill him."

Ég tek ofan fyrir Phoenix Suns liðinu sem í þessum leik gafst ekki upp þrátt fyrir að vera að díla við lið sem var að spila meistara-kaliber leik.  Mikill karakter í þessu liði og það er afburðarvel þjálfað.  Gentry er góður að mótivera strákana sína með línum sem enda oftast á "Okay?".  Nú þurfa bara Suns að negla STAT aftur á samning í sumar og leggja í enn eitt rönn að ári.


mbl.is Lakers meistari í Vesturdeildinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kevin Garnett æfir karate á Dwight Howard

Fram að þessu hafði mér fundist Kevin Garnett sýna mikla stillingu í gengum þessa seríu.  Hérna hins vegar sýður upp úr hjá honum og hann sprengir nokkur öryggi.  Í sjálfu sér skil ég pirringinn hjá Garnett því svona hand-check eins og Howard er með er bannað í deildinni.  Það má leggja framhandlegginn á andstæðinginn en ekki höndina sjálfa.  Ég er reyndar hissa að Garnett hafi ekki fengið tæknivíti fyrir þetta því ásetningurinn er augljós.


Orlando Magic farnir í frí

Boston Celtics gengu frá Orlando Magic í sjötta leik seríunnar.  Orlando menn mættu hreinlega ekki í vinnuna að undanskildum Dwight Howard sem skilaði fínum tölum.  Rashard Lewis, sem er með einn stærsta launasamning deildarinnar var aðeins skugginn af sjálfum sér og Vince Carter var... Vince Carter - gagnslaus.  Nelson átti spretti en virðist samt ekki vera þessi leikstjórnandi sem hugsar fyrst og fremst um að keyra í gegn leikkerfi og koma öllum inn í leikinn. 

Leikur Celtics var öllu betri.  Stíf vörn eins og sést hefur í fyrstu leikjunum en innkoma Nate Robinson í öðrum leikhluta kveikti í liðinu.  Nate kom inn kokhraustur eftir langa dvöl á bekknum og skoraði 13 stig í öðrum hluta.  Magnað að sjá í myndbandinu hér að neðan Doc Rivers segja í apríl að Nate myndir koma inn fyrr eða síðar og klára leik fyrir þá.  Sannspár var hann.

Annars er einkennilegt að horfa á tölfræði leiksins þar sem bæði lið skiluðu nánast sömu tölum.  Það sem skilur að er fjöldi skoraðra þriggja stiga karfa og nýting þeirra.  Celtics voru einnig öruggari á línunni og heldur grimmari í fráköstum.  Howard var 11/17 en restin af byrjunarliðinu var 14/40 og segir það meira en þarf um frammistöðu liðsins.  Bestu menn liðsins verða að mæta með hausinn á herðunum en ekki í rassgatinu ef þeir ætla að komast í úrslit NBA deildarinnar.


Ron Artest sektaður af Lakers fyrir óstundvísi

Eftir að hafa farið beint í lóðin eftir 5 leikinn gegn Phoenix Suns, þar sem hann skoraði sigurkörfuna á ævintýralegan hátt, tókst Ron Artest að mæta of seint á æfingu daginn eftir, og uppskar sekt fyrir.  Henny er greinilega aldrei langt undan þó Ron Ron sé allur í grænmetisréttum og lyftingum eftir leiki.  Eða þá bara að Ron Ron er ekki viðbjargandi þegar að stundvísi kemur.

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband